Lausnamiðaður ráðgjafi í Tækniráðgjöf Deloitte

Deloitte

Not Interested
Bookmark
Report This Job

profile Job Location:

Kópavogur - Iceland

profile Monthly Salary: Not Disclosed
Posted on: 02-10-2025
Vacancies: 1 Vacancy

Job Summary

Tækniráðgjöf Deloitte leitar að öflugum einstaklingi til að ganga til liðs við breiðan hóp sérfræðinga sem sinna fjölbreyttum ráðgjafaverkefnum fyrir viðskiptavini sína dag frá degi í mismunandi geirum atvinnulífsins.

Í starfi þínu sem ráðgjafi (Business Analyst) muntu njóta þín ef þú ert drífandi að eðlisfari býrð yfir mikilli greiningarfærni og ef þér finnst spennandi að takast á við og leysa vandamál t.d. tengd ferlum rekstri og tækni. Þú lærir af víðtækri þekkingu og reynslu reyndari ráðgjafa á þínu sviði. Starfið hentar vel þeim sem hafa nýlokið eða nýlega lokið námi og eru áhugasöm um að stíga sín fyrstu skref í ráðgjöf. 

Helstu verkefni:

Þú vinnur að og styður við verkefni reyndari ráðgjafa. Dæmi um verkefni þín eru:

  • Greining áskorana og úrlausn: Greina flókna viðskiptaferla og áskoranir og koma með tillögur að lausnum í rekstri viðskiptavina okkar.
  • Samskipti við viðskiptavini: Hjálpa til við að greina þarfir viðskiptavina og miðla til þeirra lausnum með áhrifaríkum hætti.
  • Kynning á niðurstöðum: Að umbreyta flóknum málefnum eða úrlausnarefnum yfir í skýrar og markvissar kynningar eða skýrslur.
  • Önnur tilfallandi verkefni svo sem aðstoð við kynningar og framsetning gagna.

Qualifications :

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi t.d. verkfræði viðskiptafræði eða tölvunarfræði
  • Þekking á algengum kerfum innan upplýsingatækni (t.d. fjárhagskerfum) er kostur
  • Greiningarfærni: Gagnrýnin hugsun og færni til að greina flókin viðfangsefni og sjá leiðir til úrlausnar
  • Forvitni: Það er þér eðlislægt að kynna þér ólík viðfangsefni tækni og aðferðafræði. Þú hefur gaman að því að takast á við ný og krefjandi verkefni.
  • Samskiptafærni: Færni til að setja þig í spor viðskiptavina og geta átt í reglulegum samskiptum við fjölbreyttan hóp þeirra. Geta kynnt hugmyndir með einföldum skýrum og áhrifaríkum hætti.
  • Þjónustulund: Færni til að setja þig í spor viðskiptavina og hafa þeirra þarfir að leiðarljósi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

Það kann enginn allt frá fyrsta degi. Þú færð viðeigandi þjálfun og munt vaxa með teymunum okkar. Ef þú hefur vilja til að vaxa forvitni og færni til að setja þig inn í ólíka málaflokka og metnaður til að þróast í starfi þá viljum við heyra í þér.


Additional Information :

  Starfsþróun þín 

  • Við upphaf starfs færðu leiðbeinanda sem kemur þér inn í starfið (Buddy-kerfi)
  • Þú færð þjálfun og stuðning frá reyndum sérfræðingum í teyminu þínu
  • Þú verður með reyndan Coach sem aðstoðar þig við að þróa þig áfram í starfi
  • Þú lærir mikiðáþeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum geirum.
  • Við styðjum við vöxt þinn með símenntunartækifærum.

Að auki bjóðum við upp á: 

  • Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat.
  • Veglegan líkamsræktarstyrk virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
  • Styrki til foreldra
  • Fyrirmyndar aðbúnað starfsfólks 
  • Sjálfboðastarf til áhrifa launaður dagur til að sinna sjálfboðaverkefnum
  • Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið t.d. hlaupahópur fótbolti í hádeginu og leikjaherbergi.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Stefán Ingi Arnarson  (). Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Tekið er á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Deloitte  til og með óber nk. 

Vilt þú hafa áhrif Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman sem ein heild vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið starfsstöðvar og lönd auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi. 


Remote Work :

No


Employment Type :

Full-time

Tækniráðgjöf Deloitte leitar að öflugum einstaklingi til að ganga til liðs við breiðan hóp sérfræðinga sem sinna fjölbreyttum ráðgjafaverkefnum fyrir viðskiptavini sína dag frá degi í mismunandi geirum atvinnulífsins.Í starfi þínu sem ráðgjafi (Business Analyst) muntu njóta þín ef þú ert drífandi að...
View more view more

About Company

Company Logo

Do you want to be at the forefront of technology strategy and transformations at some of Denmark’s largest and most exciting companies? If yes, then we are the team for you! With more than 3,000 employees, Deloitte is the largest audit and consultancy firm in Denmark. We tailor solut ... View more

View Profile View Profile